

Leirmótun & Leirvitund
Skapandi ferðalag með leirnum
Á þessu námskeiði lærum við ekki aðeins að móta og glerja fallega muni – heldur opnum við líka dyr að dýpri tengingu við okkur sjálf í gegnum leirvitund.
Leirinn kennir okkur þolinmæði, núvitund og snertingu við það sem býr innra með okkur.
Í námskeiðinu felst:
-
Mótun á einstaklingsbundnum leirmunum
-
Glerjun og undirbúningur fyrir brennslu
-
Leiðsögn í leirvitund – að skapa með nærveru og tengjast sjálfum sér í gegnum leirinn
Praktísk atriði:
-
Námskeiðið stendur yfir í 3 skipti, hvert skipti 3 tímar
-
Hámark 6 þátttakendur – sem tryggir persónulega leiðsögn og rými til að njóta ferlisins
-
Verð: 30.000 kr.
-
Innifalið er allur efniskostnaður: leir, glerungur, brennsla og leiðsögn
Þetta er ferðalag í sköpun, núvitund og tengingu – þar sem þú færð bæði að skapa eitthvað fallegt og næra þig á leiðinni.
